Hrekkjavaka með Pearl Jam og Monsters of Folk

by Pétur Valsson on nóvember 2, 2009

Það hefur fylgt hrekkjavöku áratugum saman að klæðast búningum og bregða sér í allra kvikinda líki. Nokkrar þekktar hljómsveitir virðast nú vera farnar að taka upp á því að klæða sig upp sem einhverjar aðrar sveitir í tilefni hrekkjavöku og taka svo sem eins og eina þekju með tilheyrandi sveit á tónleikum. Nú á hrekkjavöku á laugardag mætti hljómsveitin Pearl Jam á svið í Philadelphiu í líki Devo og tók gamla smellinn „Whip It“. Félagarnir í Monsters of Folk (Conor Oberst, M. Ward o.fl.) gengu jafnvel enn lengra á tónleikum sínum í Louisville en þeir klæddu sig upp sem KISS - með meiköppi og öllu – og fluttu “Detroit Rock City” við ómælda ánægju tónleikagesta. Að sjálfsögðu voru einhverjir áhorfendur á tónleikunum með myndavél á lofti:

Tengdar færslur:

  1. Frí tónlistarveisla á Faktorý fimmtudagskvöldið 22. júlí.
  2. The Pass
  3. Tónleikaferðalags-dagbók Agent Fresco
  4. Weezer flytja Paranoid Android
  5. Erlent úr öllum áttum

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.