Beak>

Á dögunum kom út platan Beak> með hljómsveit sem einnig nefnir sig Beak>. Sú sveit kemur frá Bristol í Bretlandi en trommari sveitarinnar, Geoff Barrow, er einmitt drifkrafturinn á bak við eina þekktustu sveit þeirrar borgar, Portishead. Beak> var stofnuð í upphafi þessa árs af Barrow og tveimur félögum hans, Billy Fuller og Matt Williams, og sömdu og tóku upp frumburð sinn á tólf dögum. Tónlistin er undir miklum krautrokk áhrifum (með smá tilraunamennsku og sækadelíu í bland) en þau áhrif mátti einnig greina á hinni frábæru Third sem Portishead gaf út í fyrra. Beak> gengur þó mun lengra í átt til áhrifavaldanna og ætti músíkin að höfða sérstaklega til þeirra sem gaman hafa af Faust, Neu!, Can og fleiri öðlings krautrokkurum … tékkum á tveimur tóndæmum:

Beak> – I Know

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Beak> – Iron Action

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Bookmark and Share
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 5.0/5 (3 votes cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +2 (from 2 votes)
Beak>5.053pixelstats trackingpixel

Tjáið ykkur um málið