Nóra

NóraHljómsveitin Nóra varð  aldeilis ekki til á einni nóttu en frá fyrstu tilurð  hennar í myrkum bílskúr í Vesturbæ Reykjavíkur árið 2003 eru nú liðin sex ár. Sagt er að góðir hlutir gerist hægt og í dag státar Nóra af fimm einkar frambærilegum einstaklingum með stóra drauma. Það eru systkinin Egill og Auður sem syngja og leika á gítar og hljómborð, bassaleikarinn Hrafn og trommarinn Bragi. Sveitin varð síðan
fullskipuð þegar allt-mögulegt-maðurinn Frank gekk til liðs við hana vorið 2008. Þá lauk jafnframt bílskúrsárunum, hún tók sér nafnið Nóra (í höfuðið á kattarkonunni í bókinni um Ungfrú Nóru) og hóf að herja á tónleikastaði borgarinnar af krafti.

Á skömmum tíma hefur sveitin vakið athygli og safnað sér aðdáendum víðs vegar að, enda þykir hún þétt og sjarmerandi á sviði. Hún spilaði meðal annars á Nasa á tónlistarhátíðinni Réttum í september, og nú
síðast á þrennum Airwaves Off-Venue tónleikum við góðar undirtektir.

Nóra er metnaðarfull hljómsveit með frambærilegar lagasmíðar sem full ástæða er til að gefa gaum. Hún hefur skapað sér sinn eigin hljóm sem mætti ef til vill lýsa sem indírokki með smá rjóma á köflum. Meðlimir
sveitarinnar eru misviljugir til að gefa upp áhrifavalda sína en til að minnast á eitthvað má nefna Radiohead, Bob Dylan, TV on the Radio, Pixies, Converge, Neil Young og Roy Orbison.

Í sumar lagði sveitin upp í langferð vestur á Flateyri í þeim tilgangi að hljóðrita sína fyrstu plötu. Upptökurnar gengu vonum framar enda varla annars að vænta undir dyggri stjórn Önundar Pálssonar í
Tankanum, umvafin fjöllum Önundarfjarðar. Um hljóðblöndun og hljómjöfnun sá Axel Flex og mega menn búast við að geta gripið sér eintak af plötunni Er einhver að hlusta? úr hillum plötubúða snemma á nýju ári.

Fyrsti síngúll plötunnar nefnist “Sjónskekkja” og hljómar hér að neðan lesendum til ánægðu og yndisauka.

Nóra – Sjónskekkja

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Nýtt Fleet Foxes lag
  2. Hudson Wayne vaknar úr dvala
  3. Innlendar tilkynningar, erlent efni
  4. B.sig verður Monotown
  5. Fear The Fives

Tjáið ykkur um málið