Útgáfutónleikar Our Lives
Fréttatilkynning
Hljómsveitin Ourlives hefur nú sent frá sér sína fyrstu plötu, We Lost the Race. Með þessari heilsteyptu og metnaðarfullu plötu skjóta Ourlives sér beint í framlínu íslenskra tónlistarmanna. Platan hefur að geyma frábærar lagasmíðar og metnaðarfullar útsetningar sem hafa heillað hlustendur að undanförnu.
Það er sjaldgæft að fyrsta plata hljómsveitar innihaldi jafn mörg lög sem hljómað hafa í útvarpi og þessi frumburður Ourlives. Lagið “Núna” var mest spilaða lagið á útvarpsstöðinni X-inu og hið vinsæla lag “Out Of Place” sat í fyrsta sæti vinsældarlista Rásar 2 og fór á topp X-Dominos listans. Með plötunni fylgir svo slóð á svæði hjá www.tonlist.is sem hægt er að sækja 9 aukalög, eða svokallaðar B-hliðar. Þar er meðal annars ábreiða Ourlives og Togga af laginu “Þúsund sinnum segðu já”, sem hefur hljómað á öldum ljósvakans um nokkurt skeið. Eins má þar finna lagið “Sandra” sem féll vel í kramið hjá íslenskum rokkunnendum. Upptökustjórn og hljóðblöndun var í höndum þeirra Barða Jóhannssonar og Styrmis Haukssonar.
Úgáfutónleikar plötunnar munu verða haldnir Fimmtudaginn 12. nóvember í Hafnarfjarðaleikhúsinu. Á þessum tónleikum mun hljómsveitin spila öll lögin á plötunni. Ekki missa af einu ferskasta íslenska tónleikabandinu spila á frábærum stað.
Aðgangseyrir á tónleikana er 1200kr og miðasala fer fram í gegnum miða.is : http://midi.is/tonleikar/1/5745
Our Lives – Nothing Changes
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:
- Ourlives – We Lost The Race
- Retrön kynnir Swordplay & Guitarslay
- Toggi á Apótekinu
- Kakali
- The Telepathetics – What We Are








Nýlegar Athugasemdir