Íslensk Death Cab For Cutie ábreiða

by Hildur Maral Hamíðsdóttir on nóvember 10, 2009

Skötuhjúin Hildur og Árni í hljómsveitinni Rökkurró hafa undanfarna mánuði verið með hliðarverkefni í tónlist sem fer þannig fram að þau taka upp lög annarra sveita í eigin búning og setja á youtube. Það hafa margir beðið spenntir eftir fjórða laginu enda skemmtileg hugmynd og vel framkvæmd. Þó það sé nóg að gera hjá þeim þessa dagana þegar undirbúningsvinna Rökkurróarplötu nr. tvö er í fullum gangi hindraði það ekki gerð fjórða myndbandsins, sem er að þessu sinni nýjasti smellur Death Cab For Cutie, „Meet me on the Equinox“. Þess má geta að lag þetta kemur til með að heyrast í nýjustu Twilight vampírumyndinni, New Moon, og hentar myndbandið því ágætlega enda nettur myrkrakeimur í gangi og smá vampírustemning.Myndbandið má sjá hér fyrir neðan, en auk upprunalega lagsins með Death Cab eru til upprifjunar fyrri myndbönd Hildar og Árna.

„Meet me on the Equinox“ - Hildur og Árni

„Meet me on the Equinox“ – Death Cab For Cutie

„Daniel“ – Hildur og Árni (upprunalega Bat For Lashes)

„Nantes“ – Hildur og Árni (upprunalega Beirut)

„Skinny Love“ – Hildur og Árni (upprunalega Bon Iver)

Tengdar færslur:

  1. Rökkurró og röð ábreiða
  2. Singapore Sling – Perversity, Desperation and Death
  3. Internetið í sjónvarpið?
  4. Ólöf Arnalds með nýtt myndband
  5. FM Belfast – American

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.