Íslenskt, já takk!
Íslenskir tónlistarmenn eru heldur betur í gír þessa dagana og er útgáfugleðin engu lík. Eins og fram kemur hér að neðan eru Me, The Slumbering Napoleon að gefa út sína fyrstu breiðskífu og halda upp á það seinna í dag á Havarí.
Megas og Senuþjófarnir voru að gefa út veglegan 27 laga disk með tónleikaupptökum sem enginn aðdáandi meistarans má láta fram hjá sér fara. Segðu ekki frá (með lífsmarki) heitir gripurinn og inniheldur öll bestu lög Megasar í eldhressum og kófsveittum útsetningum.
Megas og Senuþjófarnir – Kvöld í Atlavík
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Dúóið BB/BLAKE sem samanstendur af þeim Veru Sölvadóttur and Magnúsi Jónssyni leikara og fyrrum GusGus liðsmanni. Gáfu þau nýlega út sína fyrstu samnefndu plötu og er þar á ferð frekar myrkt en afar danshæft rafsuðupopp. Plötuna má nálgast á gogoyoko.com
BB&BLAKE – Spy
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Rokksveitin Hoffman gaf í síðasta mánuði út plötuna Your Secrets Are Safe With Us en titill plötunnar á víst að vísa í hið frábæra efnahagsástand okkar Íslendinga. Axel “Flex” Árnason sá um upptökur, mixermennsku og masteringu og er útkoman hjá þeim félugum með mestu ágætum.
Hoffman – Ride & Right
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Fleiri plötur eru væntanlegar á næstu dögum og vikum og mun Rjóminn að sjálfsögðu leitast við að færa ykkur fréttir og tóndæmi eins fljótt og auðið er.
Tengdar færslur:
- Íslenskt? Já, takk!
- Íslenskt? Já, takk!
- Ný lög frá Arcade Fire
- Órafmagnað Swords Of Chaos
- Lagalisti á þriðjudegi








Nýlegar Athugasemdir