Dikta – Get it Together

Dikta - Get it togetherNý plata hljómsveitarinnar Diktu birtist í verslunum 16. nóvember, eftir fjögurra ára bið, en á plötunni Get It Together má meðal annars finna lögin “Let G”o og “Just Getting Started”. Þessi frábæru lög ættu að vera allflestum að góðu kunn en þau hafa bæði hljómað reglulega í útvarpstækjum landsmanna. Hið síðarnefnda var t.d. annað vinsælasta lag Rásar 2 á síðasta ári. Þetta meistaraverk er uppfullt af ódauðlegum tónsmíðum þar sem tvinnað er saman frábærum textum og undurfögrum laglínum á eftirminnanlegan hátt.Sveitin hefur spilað á fjölmörgum tónleikum um allan heim og hefur orð á sér fyrir að vera frábær á sviði.

Platan var hljóðrituð í sumar af sveitinni sjálfri en til að reka smiðshöggið á snilldina fékk hljómsveitin til liðs við sig sænska upptökustjórann Jens Bogren til að hljóðblanda verkið. Síðasta plata hljómsveitarinnar Hunting For Happiness kom út árið 2005 og hlaut frábæra dóma hlustenda og gagnrýnenda, m.a. 5/5 í Morgunblaðinu og var valin ein af 100 bestu plötum Íslandssögunnar.

Fimmtudaginn 19. nóvember næstkomandi mun Dikta halda upp á útgáfu plötunnar á Nasa við Austurvöll. Verður platan spiluð í heild sinni og verður öllu tjaldað til til að gera kvöldið sem ógleymanlegast fyrir alla viðstadda. Eins og þeir sem hafa séð Diktu á sviði geta vitnað um má búast við flugeldasýningu fyrir öll skilningarvit og mun enginn fara ósnortinn heim.

Miðasala er hafin á Miða.is http://midi.is/tonleikar/1/5754

Dikta – From Now On

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Valdimar og Nóra spila á Faktorý í kvöld
  2. Stolið með comeback áratugarins
  3. Frí tónlistarveisla á Faktorý fimmtudagskvöldið 22. júlí.
  4. Toggi á Apótekinu
  5. Innlendar tilkynningar, erlent efni

Tjáið ykkur um málið