Týndu Pink Floyd lögin
Hin ágæta sveit Pink Floyd fór á sínum tíma í gegnum nokkur skeið og er það mat þess sem hér skrifar að það skemmtilegasta var sækadelíska skeiðið þegar Syd Barrett leiddi sveitina. Frá þessu tímabili eru þónokkrar smáskífur, breiðskífan Piper at the Gates of Dawn (1967) og hluti A Saucerful of Secrets (1968). Einnig eru til nokkur óútgefin lög frá tímabilinu, sem með tíð og tíma hafa ratað á hina ýmsu bútlega. Þar á meðal eru tvö afar súr lög eftir Syd Barrett sem tekin voru upp haustið 1967, á sama tíma og nokkur lög sem enduðu á Saucerful og smáskífum, og voru líkast til seinustu lögin sem Barrett samdi áður en hann yfirgaf sveitina til að einbeita sér að geðveiki sinni.
Pink Floyd hafði hugsað lögin “Scream Thy Last Scream” og “Vegetable Man” sem væntanlegar smáskífur en jakkafatamennirnir hjá EMI voru á öðru máli og þóttu þau alltof skrýtin til útgáfu. Lögin enduðu því í geymsluhólfum plötufyrirtækisins og hafa aldrei fengið sómasamlega útgáfu. Þessi tvö lög eru stórskemmtilegar vísbendingar um í hvaða átt hljómsveitin hefði kannski þróast ef geðveikin hefði ekki náð Barrett algerlega á sitt vald – þó að líklega hafi hann nú verið langt leiddur þegar hann samdi þau – og hljóma langt frá þeirri músík sem gerði sveitina að stórstjörnum nokkrum árum seinna.
Pink Floyd – Scream Thy Last Scream
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Pink Floyd – Vegetable Man
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:
- Deerhoof og Xiu Xiu þekja Unknown Pleasures
- Flaming Lips flytja Dark Side of the Moon
- Pavement saman á ný?
- Hæ Mutantes
- Eins-smells-undrið Human Beinz
2 Athugasemdir
Hildur Maral Hamíðsdóttir on nóvember 16th, 2009
Namm!!!








Egill Harðar on nóvember 16th, 2009
Scream Thy Last Scream er eitt af mínum uppáhalds lögum. Áhugasamir geta fundið það á safnplötunni Artifacts From The Psychedelic Dungeon (Volume One) sem hægt er að grafa upp á netinu : http://www.discogs.com/Various-Artifacts-From-The-Psychedelic-Dungeon-Volume-One/release/1070188