Beach House syngja um Noreg

Hin frábæra Beach House gefur út sína þriðju plötu snemma á næsta ári og mun gripurinn heita Teen Dream. Hljómsveitin hefur nú skipt um útgáfufyrirtæki og skrifað undir samning við Sub Pop, en fá útgáfufyrirtæki hafa gefið út jafn mikið af áhrifamiklum jaðarskífum og útgáfan sú. Síðustu tvær skífurnar frá skötuhjúunum Alex Scally og Victoriu Legrand voru hreint stórkostlegar og með mest spiluðustu plötum undanfarinna ára hjá þeim sem hér skrifar. Það ríkir því töluverð eftirvænting eftir gripnum hér enda vonir bundnar við að Teen Dream verði ekki eftirbátur forvera sinna. Fyrsta lagið sem heyrist af plötunni heitir “Norway” eftir frændlandi voru og má þar heyra sveitina þróa stíl sinn áfram án þess sleppa tökum á heillandi einkennum sínum, nammi namm.

Beach House – Norway

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Og fyrst við erum að tékka á Beach House skulum við rifja upp lagið sem Victoria Legrand, söngkona sveitarinnar, söng með Grizzly Bear fyrir stuttu:

Grizzly Bear – Slow Life (feat. Victoria Legrand)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Meira nýtt frá Beach House
  2. Beach House þekur Queen
  3. Thom Yorke og Grizzly Bear í vampýrustuði
  4. Ný lög frá Arcade Fire
  5. Syngja Söng Sungið

Ein athugasemd

Hildur Maral Hamíðsdóttir  on nóvember 17th, 2009

Nammi namm, segi ég með þér.

Fyndið samt, lagið með henni og GB var eitt af mörgum frábærum lögum sem rötuðu í sándtrakk nýjustu Twilight myndarinnar. Kom mér mjög á óvart, er búin að hlusta mikið á þann disk… St.Vincent+Bon Iver, Thom Yorke, Death Cab For Cutie, þetta lag… mjög fínt dót!

Tjáið ykkur um málið