Nýtt myndband frá Danielson
Það er nokkuð um liðið síðan síðast heyrðist nýtt efni frá hinni frábærru sveit Danielson (sem einnig hefur kallað sig Danielson Famile, Tri-Danielson og Br. Danielson). Aðalsprauta hljómsveitarinnar er hinn ofurkristni Daniel Smith og fær hann fjölskyldumeðlimi og nána vini til þess að spila með (Sufjan Stevens spilaði m.a. oft með sveitinni áður en frægðarsól hans reis). Einhverjir muna vafalaust eftir tónleikum Danielson í Fríkirkjunni fyrir rúmum tveimur árum sem voru hreint út sagt frábærir, en sveitin var þá stödd á hér á landi í tilefni sýningar heimildamyndarinnar Danielson: A Family Movie (or, Make A Joyful Noise HERE) á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð. Nú hefur sveitin gefið út nýja 7″ smáskífu og gert myndband við a-hliðina “Moment Soakers” en á bakhlið plötunnar má heyra sveitina þekja Abba lagið “Eagle”.
Tengdar færslur:
- Nýtt myndband Benna Hemm Hemm
- Nýtt myndband frá Jónsa
- Nýtt myndband frá OK GO
- Jónsi með myndband við Go Do
- Nýtt myndband frá CocoRosie








Nýlegar Athugasemdir