Árslok Animal Collective

fallbekind8Animal Collective ætla greinilega að enda frábært ár sitt með stæl. Fyrir rúmri viku gáfu þeir félagar út smáskífuna “Brothersport” af Merriweather Post Pavillion og innihélt skífan þar að auki eitt nýtt lag. Örfáum dögum síðar fór “In the Flowers” vídjóið að birtast hér og þar á vefnum. Núna er svo væntanleg EP-skífa, sem nefnist Fall Be Kind, og er hún raunar farin að sveima á vefnum sökum einhverskonar mistaka í dreyfingu hjá Domino Records. Þarna eru á ferðinni fimm ný lög, brakandi fersk úr upptökuverinu. Þess má geta að lagið sem er hér fyrir neðan, “What Would I Want? Sky.”, inniheldur hljóðbút úr ”Unbroken Chain”, lagi sýruhausanna í Grateful Dead. Verði okkur að góðu.

Animal Collective – What Would I Want? Sky. (af Fall Be Kind EP)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Animal Collective – In the Flowers

Bookmark and Share
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 5.0/5 (2 votes cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +3 (from 3 votes)
Árslok Animal Collective5.052pixelstats trackingpixel

Tjáið ykkur um málið