Beck og Gainsbourg gera video saman
Nú í desember kemur út ný plata frá frönsku leik- og söngkonunni Charlotte Gainsbourg (sem nýlega lék í Antichrist og er jú einnig dóttir Serge Gainsbourg) en henni til halds og trausts er sjálfur Beck. Hún kann svo sannarlega að velja sér meðreiðasveina en á síðustu plötu, 5:55, voru það Air og Jarvis Cocker sem lögðu henni lið. Nýja skífan mun heita IRM og var fyrsta smáskífan, “Heaven Can Wait”, dúett milli þeirra Beck og Gainsbourg. Nú hefur verið gert myndband við lagið sem er líka með þeim betri sem á daga Rjómans hafa drifið nýlega:
Eins og minnst hefur verið á hér á Rjómanum er Beck óstöðvandi og nú síðast síðla í gær setti hann nýtt lag inn á heimasíðuna Beck.com en það heitir “Harry Partch” eftir samnefndu framúrstefnutónskáldi. Lagið gæti hugsanlega verið gamansamt skot á Matthew Friedberger úr Fiery Furnaces sem fyrir misskilning opinberaði hatur sitt á Radiohead nýlega. Hann úthúðaði Radiohead opinberlega fyrir að semja lag um Harry Partch til að sýnast töff, þegar þeir sömdu í reynd lag um bresku stríðshetjunu Harry Patch. Hið vandræðalegasta mál fyrir Friedberger sem sagt, sem líklega mun forðast nálægð við Radiohead aðdáendur næstu árin. Lesa má allt um þetta stórskemmtilega mál á Pitchfork.
Beck – Harry Partch
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:
- Thom Yorke og Banksy gera myndband saman
- Kanye West og Bon Iver gera lag saman
- Beck heldur áfram með VU&Nico
- Ný lög frá Vampire Weekend, Beck ofl. í vampýrumynd
- Gainsbourg og Gall í Júróvisjón








Nýlegar Athugasemdir