Tónleikaplata frá Bonnie ‘Prince’ Billy
Fáir tónlistarmenn eru jafn útgáfuglaðir og hinn velskeggjaði Will Oldham en ný tónleikaplata er væntanleg frá honum í desember. Platan sem að þessu sinni stíluð á Bonny Billy & the Picket Line mun heita Funtown Comedown og mun innihalda lög víðsvegar af ferli kappans (m.a. nokkur gömul Palace lög fyrir okkur gamla fólkið) auk þekja af nokkrum vel völdum kántrýslögurum. Þeir sem enn eru trúir geisladisknum verða þau að bíta í það súra epli að platan mun einungis koma út stafrænt og á vínylplötu, en varla gráta margir það. Lögin á þessari skífu munu víst vera í allt öðruvísi búningi en aðdáendur eiga að venjast, en forsmekkinn má heyra hér í útgáfu Bonny Billy & the Picket Line af “Death To Everyone” sem upprunalega kom út á I See A Darkness fyrir rúmum 10 árum. Lagið er reyndar ekki á Funtown Comedown en áhugasamir geta sótt sér mp3 af því ókeypis á heimasíðu Drag City.
Bonny Billy & the Picket Line – Death to Everyone
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.





Recent Comments