Nýtt frá Massive Attack

Eins og kom fram á Rjómanum fyrir stuttu er hljómsveitin frábæra Massive Attack búin að vera að vinna að nýrri smáskífu, aðdáendum sveitarinnar til mikillar gleði. Rjóminn setti titillag skífunnar, „Splitting the Atom“ á síðuna þegar það var nýkomið út en síðan hefur rest skifunnar gert vart við sig á youtube. Það er kannski ekki úr vegi að leyfa lesendum Rjómans að hlusta á hin lögin í þeirri röð sem þau eru á smáskífunni, en þess má geta að Guy Garvey úr hljómsveitinni Elbow og Tunde Adebimpe úr TV on the Radio syngja í tveimur lögunum.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Massive Attack með nýtt efni
  2. Worm Is Green
  3. Úr pósthólfinu
  4. Nóra með ókeypis lag og jólatónleika
  5. 5 bestu lög ársins

Tjáið ykkur um málið