Rome

Hey, hvenær heyrðiru seinast áhugaverða tónlist frá Lúxemborg? Hvenær heyrir maður yfirleitt tónlist frá Lúxemborg – svona að frátöldu Eurovision? Fyrir stuttu rakst ég á sveitina lúxemborgísku sveitina Rome sem spilar að eigin sögn “Chanson Noir” og hljómar víðsfjarri eurovision lummum. Tónlist sveitarinnar er drungaleg þjóðlagatónlist og söngvari sveitarinnar, Jerome Reuter, minnir eilítið á mið-evrópskan Nick Cave þannig að þunglyndislegra verður það varla. Sveitin hefur verið starfandi í nokkur ár og þeirra þriðja breiðskífa sem kom út síðastliðið sumar nefnist Flowers From Exile og gæti verið sándtrakk við heimsendi en á einnig ágætlega við á dimmum vetrardögum.

Rome – The Secret Sons of Europe

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Rome – Swords To Rust / Hearts To Dust

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 0.0/5 (0 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: +4 (from 4 votes)
pixelstats trackingpixel

Tjáið ykkur um málið