Final Fantasy með nýja plötu
Owen Pallett er betur þekktur sem Final Fantasy og heimsótti okkur Íslendinga í fyrra á Iceland Airwaves. Þó að fiðlan sé hans aðalhljóðfæri þykir Owen einstaklega fjölhæfur og hefur meðal annars starfað náið með Arcade Fire, Beirut o.fl. gæðasveitum. Í byrjun janúar mun þriðja breiðskífa kappans koma út hjá gæðaútgáfunni Domino og mun heita Heartland. Fyrsta lagið sem heyrist af plötunni heitir “Lewis Takes Action” og sækja má frítt mp3 af því á heimasíðu Domino. Nú eða bara tékk á því hér á Rjómanum:
Final Fantasy – Lewis Takes Action
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:
- Frí EP plata frá Owen Pallett
- 6 ný lög sem þú verður að heyra
- Ný lög frá Arcade Fire
- Blonde Redhead í Dungeons & Dragons
- Ný og frí smáskífa með Dirty Projectors








Nýlegar Athugasemdir