Meira nýtt frá Vampire Weekend
Já, enn berast nýir tónar frá Vampire Weekend. Eins og lesendur eflaust vita þá er Contra, önnur plata sveitarinnar, væntanleg í byrjun janúar og hafa nú þegar tvö lög af skífunni verið birt á netinu aðdáendum til ánægju og yndisauka: Cousins og Horchata. Nýjasta lagið ber nafnið “California English pt.2″ – og því ber ekki að rugla saman við “California English (pt.1)” sem mun prýða Contru. Hluti tvö er nefnileg tekinn af B-hlið “Cousins” smáskífunnar og því alls ekki ljóst hvernig lögin tvö tengjast.
Vampire Weekend – California English pt. 2
Ég ætla að leyfa að fljóta með endurhljóðblöndun á laginu “The Kids Don’t Stand A Chance” sem kanadíska elektró-popp sveitin Chromeo vann. Upprunalega lagið birtist á samnefndu framburði Vampire Weekend.
Vampire Weekend – The Kids Don’t Stand A Chance (Chromeo Remix)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Engar tengdar færslur.








Nýlegar Athugasemdir