Nýtt lag frá Portishead
Fáar fréttir hafa glatt mig eins mikið undanfarið eins og þegar ég heyrði að Portishead væru tilbúin með nýtt lag, enda var Third frá því í fyrra eitt það allra besta sem kom út það árið.. Því miður er ekki heil plata tilbúin, en líklega mun biðin eftir næstu skífu ekki vera 11 ár því sveitiarmeðlimir hafa tilkynnt að vinnsla sé þegar hafin við fjórðu breiðskífu hljómsveitarinnar.
Nýja Portishead lagið heitir “Chase The Tear” og er gefið út til styrktar Amnesty International í tilefni alþjóða mannréttindadagsins sem er í dag 10. desember. Í laginu má heyra Portishead þróa stíl sinn í rökréttu framhaldi af því sem heyrðist á Third en einnig gætir áhrifa frá hliðarverkefni Geoff Barrow, Beak>, sem gaf einmitt út plötu nýlega.
Það má horfa og hlusta á myndband af laginu á vimeo og á heimasíðu Amnesty International í Bretlandi. Því miður er lokað á að við Íslendingar getum keypt lagið og styrkt gott málefni, en ef þið eruð stödd einhvers staðar annars staðar í hinum vestræna heimi getið þið skotist á 7digital og nælt í lagið fyrir smáaura.
Portishead – Chase The Tear
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.





Recent Comments