Útgáfur 2010

Þó að árið 2009 sé nú ekki alveg liðið er þegar farinn að myndast langur útgáfulisti fyrir næstkomandi ár og er þar margt ansi spennandi á ferðinni! Strax í janúar er von á nýjum breiðskífum frá ekki ómerkari listamönnum en Vampire Weekend, Beach House, Four Tet, Editors, Spoon, Final Fantasy og The Magnetic Fields. Í febrúar gefa svo Massive AttackYeasayer, Hot Chip, TindersticksMidlake, Quasi og Xiu Xiu út nýjar plötur og LCD Soundsystem, Liars, Scissor Sisters og Black Rebel Motorcycle Club hafa staðfest útgáfu í mars.

Fleiri plötur munu koma út á árinu þó að útgáfudagur hafi ekki verið festur, m.a. frá Arcade Fire, The Strokes, MGMT, Panda Bear, Joanna Newsom, Cat Power, Interpol, The Avalanches, of Montreal, Broadcast, Menomena, Jens Lekman og Gorillaz. Þar að auki hafa menn og konur velt fyrir sér ýmsum hugsanlegum plötum sem ekki enn hafa verið staðfestar, t.d. frá gömlum jálkum eins og Blur, Kraftwerk, Devo, Happy Mondays og jafnvel Roxy Music! Við skulum samt bíða og sjá áður en við gerum okkur of miklar vonir.

Í íslensku deildinni hefur þegar verið tilkynnt um  nýjar skífur frá Seabear og Jónsa í Sigur Rós. Það á þó vonandi eftir að bætast töluvert í þann bunka þegar líða tekur á næsta ár, enda liggur þungi íslenskrar útgáfu yfirleitt á seinni hluta ársins.

Þegar hafa nokkur lög af væntanlegum 2010 plötum komist á flakk í netheimum og tökum smá forskot á sæluna…

Massive Attack – Pray for Rain (feat. Tunde Adebimpe)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Beach House – 10 Mile Stereo

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Yeasayer – I Remember

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Vampire Weekend – Horchata

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. The Pains Of Being Pure At Heart með nýja smáskífu
  2. Björk og Ólöf Arnalds syngja saman
  3. Ný Bonnie ‘Prince’ Billy plata í mars
  4. Beach House þekur Queen
  5. Fanfarlo með nýtt lag, remix og myndbönd

Tjáið ykkur um málið