Nýtt & frítt frá Sam Amidon

231287653-1Sam Amidon ættu margir að þekkja, en hann er á mála hjá íslensku útgáfunni Bedroom Community. Sam hefur sent frá sér ansi áhugaverðar plötur á undanförnum árum og styttist nú í þá nýjustu, en hún hefur hlotið nafnið I See The Sign og er væntanleg í verslanir þann 1.mars 2010. Nú hefur Sam sett lag af plötunni á heimasíðu sína sem hægt er að sækja frítt og mælir Rjóminn að sjálfsögðu með að lesendur nýti sér þetta tækifæri enda lagið þrusugott. Það heitir „How Come That Blood“ og má ná í það hér, en fyrir þá sem vilja bara hlusta má heyra lagið hér að neðan. Njótið!

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Dum Dum Girls
  2. Nýtt frá Yeasayer
  3. Ný Vaselines plata
  4. Will Oldham fer aftur til fortíðar
  5. The Drums gefa út The Drums

Tjáið ykkur um málið