Brak gefur út Hátinda Insol

Brak gefur út Hátinda Insol tekna saman af poppfræðingnum Dr. Gunna.

Hátindar InsolInsol þarf vart að kynna tónlistaráhugamönnum enda hefur hann heillað þjóðina upp úr skónum með einlægum lögum sínum og textum. Eftir Insol liggja fjölmargar plötur sem komu út á árabilinu 1999-2003 og eru þær gefnar út af honum sjálfum. Dr. Gunni hefur nú tekið saman hálfgerða best af plötu sem kemur nú út á Brak hljómplötum, rétt fyrir jólin. Hátindar er niðurstaða þessarar samantektar, sundurleit en þó heildræn, einlæg, fyndin og falleg safnskífa frá manni sem þorir að vera hann sjálfur.

Samkvæmt venjum Braksins mun platan fást á örfáum stöðum í miðbæ Reykjavíkur sem og á Akureyri. Hún verður einnig til á netinu, einhversstaðar.

Insol – Er ég ekki of gamall fyrir þig?

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Johnny Stronghands gefur út sína fyrstu breiðskífu
  2. Tonik gefur út Form Follows
  3. Króna gefur út lag um Guðmund í Byrginu
  4. gogoyoko gefur miða á Innipúkann
  5. Nýtt frá Skakkapopp og Braki

Tjáið ykkur um málið