Julian Casablancas – Phrazes For The Young
Útgáfuár: 2009
Útgefandi: Rough Trade/Cult Records
Einkunn: 3,5
Leiðtogi bílskúrsrokksveitarinnar The Strokes frá New York, Julian Casablancas, sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu í nóvember síðastliðinn.
Casablancas hefur allt frá upphafi hljómsveitar sinnar The Strokes verið titlaður sem aðallagasmiður sveitarinnar og allt frá unglingsárum, verið iðinn við tónlistarsköpun.
Phrazes For The Young státar af átta frumsömdum lögum og þó að platan sé í styttri kantinum, er flóran mikil og fjölbreytileikinn á plötunni alveg þrælskemmtilegur. Sýnir söngvarinn hér á sér alveg nýjar og spennandi hliðar en gleymir þó engan veginn bílskúrnum, þó stundum skyggi ögn á hann.
Platan heilsar hlustanda með laginu „Out of The Blue”. Má segja að lagið sé frekar líkt fyrri verkum söngvarans en þó er hér nett glassering af ferskum og hressandi viðbótum í boði. Viðlagið er frábært og gengur þessi opnun ótrúlega vel upp. Bæði gerir hún grein fyrir nýjungum en heldur einnig í það sem aðdáendur söngvarans hafa dillað sér við í áratug.
Casablancas keyrir þó í allt annan gír í laginu sem fylgir „Left & Right In The Dark” og eru þar gítarútsetningar til fyrirmyndar. Synthar eru hér mun meira áberandi en í fyrsta laginu og aftur er viðlagið grípandi og flott. Skemmtilegt kikk í lokin!
Fyrsta smáskífa plötunnar, „11th Dimension”, er þristurinn og enn kemur söngvarinn á óvart. 80´s hljómurinn er ráðandi í upphafi og taktskiptingar eru ekki af verri endanum. Finnst mér þó eins og Casablancas sé örlítið að reyna að keyra fílinginn á viðlögum á þessu stigi en þó kemur fjölbreytileiki lagsins og dansgólfsmöguleiki þess því vel til bjargar.
Fyrir miðja plötuna ákveður söngvarinn að róa leikinn og færa hlustanda „4 Chords Of The Apocalypse”. Einfaldleikinn er hér algjör og er lítið um yfirflæðandi kryddsúpu líkt og í fyrri lögum plötunnar en öryggið uppmálað. Þó lagið sé ekki slæmt fer það engan veginn í sama klassa og fyrirrennarar þess að mínu mati. Textinn segir ágætis sögu en lagið skilur ekki mikið eftir sig.
Ludlow St.” gerir grein fyrir þekktri götu í East Village á Manhattan í New York þar sem mikil menning tónlistar – og listafólks hefur ríkt frá því í kringum stofnun Velvet Underground árið 1965.
Lagið skreytir Casablancas með áhrifum hvaðan æva að og klingir við Austurlenskum áhrifum hér og gamaldags kántrý/blús fíling Ameríkanans og býr það til einkar áhugaverða og skemmtilega blöndu sem lagið er.
Mér er þó orðið nokkuð ljóst á þessu stigi að fyrri helmingur plötunnar sé mun áhugaverðari en sá síðari. (Mér skjátlaðist!) Ég held hlustun áfram og „River Of Breaklights” er sjötta lagið í röðinni.
Þó mun hraðara en fyrri lögin nær lagið engan veginn að grípa mig í stuðið á nýjan leik og er frekar þurrt og þunnt út í gegn.
Julian Casablancas – Glass
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
„Glass”, áttunda lag plötunnar, grípur mig þó strax í upphafi. Hér er hraðinn dreginn aftur niður og eru taktasmíðar söngvarans einstaklega vel gerðar, bæði í laginu sem á plötunni í heild ef út í það er farið. „Glass” rennur ljúft í gegn, ögn bitursárt og skilur mikið eftir sig. Tilvalinn undanfari lokalagsins „Tourist” þar sem mixtúran er hreint og beint æðisleg og lagið að mínu mati eitt það besta á plötunni. Enn og aftur eru taktskiptingar að ganga upp og gítarútsetningar eru einstaklega skemmtilegar. Listamenn á borð við meistara Beck, tvímenningana í Ratatat auk annarra, koma upp í hugann en lagið helst þó ferskt, flæðandi og flott út í gegn. Söngvarinn sýnir hér vel á að hann getur séð um sig sjálfur án nokkurs vafa og á ekki í minnstu erfiðleikum með vinnu sína.
Mæli ég eindregið með þessari plötu fyrir bæði aðdáendur söngvarans frá fyrri verkum og sömuleiðis fyrir þá sem eru spenntir fyrir ferskri og ögn öðruvísi músík.
Phrazes For The Young er plata sem dregur áhrifin frá hinum ótrúlegustu stöðum og tímabilum og er tilvalin í jólapakka unga fólksins og klikkar án efa seint hjá eldri hlustendum!





Recent Comments