Flaming Lips flytja Dark Side of the Moon
Fyrir nokkrum vikum tilkynntu The Flaming Lips að þeir hyggðust flytja stórvirkið Dark Side of the Moon eftir Pink Floyd í heild sinni á miðnætti á gamlársdag næstkomandi. Varla fer neinn frá Íslandi að gera sér ferð til Oklahoma til að sjá viðburðinn með eigin augum en við getum glatt okkur við það að sveitin hefur líka tekið upp plötuna. Á upptökunni fær hljómsveitin Henry Rollins, Peaches og White Dwarfs and Stardeath með sér í lið en platan kom út stafrænt á iTunes í gær. Eins og við má búast er útgáfa Flaming Lips af plötunni gallsúr en við skulum tékka á tveimur lögum þar sem fyrrum Black Flag söngvarinn Henry Rollins leggur þeim lið:
The Flaming Lips – Money (feat. Henry Rollins)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
The Flaming Lips – Brain Damage (feat. Henry Rollins)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:
- Rjómajól – 14. desember
- Bonnie ‘Prince’ Billy og Hot Chip
- Meira nýtt með of Montreal
- Nýtt frá Gorillaz
- Deerhoof og Xiu Xiu þekja Unknown Pleasures








Nýlegar Athugasemdir