Kimono ásamt Caterpillarmen og Tamarin/Gunslinger
by Rjóminn on janúar 13, 2010
Fréttatilkynning
Núna standa fyrir dyrum tónleikar á Grand Rokk þar sem kimono hefur ákveðið að fá í lið með sér tvær afar spennandi rokksveitir af yngri kantinum, Caterpillarmen og Tamarin/Gunslinger. Sú fyrrnefna er hreinræktuð prog-sveit og inniheldur meðal annara Zakarías Hermann Gunnarsson, en faðir hans er sjálfur Gunnar Þórðarson (Trúbrot ofl). Þeir eiga því ekki langt að sækja innblásturinn og prog-pælingarnar minna oft á Trúbrot í essinu sínu. Fátt er aftur á móti vitað um Tamarin/Gunslinger annað en það að sveitin virðist sækja áhrif m.a. til hinna sálugu Skáta og jafnvel Melvins, hver veit. Hún gaf út stuttskífuna Kick A Dog?!?! nýverið og fæst hún á gogoyoko, eins og hin bráðskemmtilega Adopt a Monkey þeirra Caterpillarmanna.
Tónleikar Kimono ásamt Caterpillarmen og Tamarin/Gunslinger verðar haldnir fimmtudaginn 21. janúar kl 21:00 og kostar 1000 kr í reiðufé til að bera goðin augum.
Kimono – Vienna
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína