Bestu lög 2009 : Annar hluti
Þá er best að einhenda sér í annan hluta yfirferðar minnar yfir bestu lög síðasta árs.
Fyrsta hluta getið þið nálgast hér.
Violens – Violent Sensation Descends
New York sveitin Violens á fyrsta lag á lista hér í annari umferð. Hér er á ferð útpælt kjarnapopp með síkadelískum áhrifum og öflugu húkki. Mjög áheyrilegt.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Toggi – I Built this house
Óumdeilanlegur poppkóngur Íslands kemst auðvitað ekki hjá því að eiga lag á lista sem þessum. Þetta ljúfsára lag er með því betra sem fram kom í íslenskri tónlist á síðasta ári og svo er textinn náttúrulega snilldin ein.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Ramona Falls – Always Right
Klárlega mitt uppáhalds lag frá síðasta ári. Magnþrungið lag með hálfgerðum kvikmyndahasars undirtón (minnir mig á stef út Untouchables) sem tekur fyrirvaralausa u-beygju yfir í einhverskonar klezmer. Hrein unun!
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Múm – If I Were a Fish
Þó ekki hafi allir verið sammála um ágæti þess sem múm sendi frá sér á árinu þá var ég persónulega afar sáttur við þau. Þetta lag rennur alltaf jafn ljúflega í gegn og hljómar yfirleitt í vitum mínum lengi á eftir.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Metric – Sick Muse
Ef Ramona Falls áttu besta lagið þá eiga Metric besta viðlagið. Ég get hlustað á þetta lag endalaust og það er alltaf jaf upphefjandi og grípandi með hverri hlustun. Syngið með “Everybody, everybody just wanna fall in love. Everybody, everybody just wanna play the lead”!
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Grizzly Bear – Two Weeks
Það þarf nú varla að taka fram hvers vegna þetta lag er á þessum lista. Held að flestir séu sammála mér að hér sé á ferðinni eitt af bestu lögum síðasta árs.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Grand Archives – Oslo Novelist
Ég lofaði allavega þremur lögum með Grand Archives á þessum lista og hér kemur lag númer tvö. Ljúft lag með döprum undirtón sem smýgur innundir vitundina og hrífur mann með sér. Ég fæ aldrei nóg af svona tónsmíðum.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Hooray for Earth – Surrounded By Your Friends
Hooray for Earth er ein af þessum sveitum sem allt of sjaldan er minnst á. Hér er á ferðinni tilkomumikið og hrífandi kraftapopp af bestu gerð. Lagið er að finna á EP plötunni Momo sem er vel þess virði að eignast ef fólk finnur hana á annað borð.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Cloud Control – Gold Canary
Cloud Control er áströlsk sveit sem ég kann því miður ekki frekari deili á. Hef árangurslaust reynt að grafa upp meira efni með henni en hef aðeins fundið þetta eina lag. Sem er miður því ef eitthvað er að marka þetta frábæra lag þá er hér á ferð einstaklega öflug sveit.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:
- Bestu lög 2009 : Fyrsti hluti
- Úr pósthólfinu – annar hluti
- Íslensk tónlist á Rjómanum 2010 – Annar hluti
- Úr pósthólfinu – þriðji hluti
- Íslensk tónlist á Rjómanum 2010 – fjórði hluti
2 Athugasemdir
Guðmundur Vestmann on janúar 21st, 2010
Af einhverjum ástæðum þá hefur þessi plata ‘Grand Archives’ alveg farið framhjá mér – þetta hljómar déskoti vel!








Tweets that mention Bestu lög 2009 : Annar hluti | Rjóminn -- Topsy.com on janúar 21st, 2010
[...] This post was mentioned on Twitter by Egill Harðar and Rjóminn, Rjóminn. Rjóminn said: Á Rjómanum : Bestu lög 2009 : Annar hluti : http://twurl.nl/nujdmo (Fyrsti hluti er hér : http://twurl.nl/x6ca44) [...]