Ný LP frá Four Tet

by Guðmundur Vestmann on janúar 21, 2010

Four_Tet_-_There_Is_Love_in_You_(CD)Loksins, loksins! segi ég. Nú eru liðin heil fimm ár síðan Everything Ecstatic kom út, síðasta breiðskífa Four Tet, og biðin eftir nýrri plötu hefur verið mér ansi erfið. Það er þó ekki eins og Kieran Hebden, maðurinn á bak við Four Tet grímuna, hafi setið auðum höndum í öll þessi ár.  Hann hefur starfað töluvert með jazz-trommaranum Steve Reid, gefið út breiðskífu með hljómsveit sinni Fridge, mallað EP-plötu með Burial og endurhljóðblandað heilan haug af lögum. En raunin er sú að útgáfur undir listamannsnafninu Four Tet hafa ávallt verið þær safaríkustu.

Breiðskífan er væntanleg í búðir þann 25. janúar og ber hið ljúfa nafn There Is Love In You. Eins og útgáfur Four Tet á síðasta áratuginum þá kemur þessi út á vegum Domino Records og koverið prýðir mjög svo litrík mynd. Síngúllinn, „Love Cry“, kom út á dögunum í takmörkuðu upplagi og það er spurning um að við tökum bara forskot á sæluna. Og gerum kannski gott betur en það . . .

Four Tet – Love Cry (af There Is Love In You)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Four Tet – Sing (af There Is Love In You)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Four Tet & Burial – Moth (af Moth/Wolf Cub)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. The Pains Of Being Pure At Heart með nýja smáskífu
  2. Erlent úr öllum áttum
  3. Nokkrar áhugaverðar útgáfur í september
  4. Nýtt erlent
  5. Nýtt frá PJ Harvey

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.