Nýtt frá Efterklang

Efterklang_Magic_Chairs_emailEftir rétt tæpan mánuð munu dönsku krakkarnir í Efterklang senda frá sér nýja plötu. Gripurinn hefur hlotið nafnið Magic Chairs og er nú þegar orðinn aðgengilegur á netinu. Rjóminn stalst til þess að hlusta á nokkur lög og verður að segjast að þau hljóma bara nokkuð vel! Ljóst er með fyrstu tónum plötunnar (í laginu „Modern Drift“) að sveitin hefur gengið í gegnum stórfelldar breytingar á ferli sínum og kveður hér við nýjan – og poppaðri – tón hjá Efterklang. Ætli Magic Chairs verði indípopp-plata ársins 2010, líkt og Grizzly Bear og Animal Collective voru árið 2009? Það er kannski allt of snemmt fyrir svoleiðis pælingar, en þó í lagi að láta tóndæmi fylgja með. Einnig geta áhugasamir kíkt á myndbandið fyrir neðan, en þar heyrast nokkrir lagabútar af nýju plötunni sem og nýárskveðjur hljómsveitarmeðlima.

„Modern Drift“ – Efterklang

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Lagalisti á þriðjudegi
  2. Nýtt lag frá Here We Go Magic
  3. Ný lög frá Arcade Fire
  4. 6 glæný lög fyrir helgina
  5. Byrjum vinnuvikuna á…

3 Athugasemdir

Mikael Lind  on febrúar 4th, 2010

Gott að þeir eru að ganga í gegnum breytingar. Það eru nokkur lög sem eru góð á fyrri plötunum en sem heild eru þær ekki nógu góðar. Efterklang er svona sveit sem gerir allt rétt einhvern megin, en nær samt ekki alveg að ná athygli manns til fullu. Allt er voða fallegt og hljómar nýskapandi, en það eru aðrar sveitir sem gera það sama en betra. En það verður spennandi að heyra þessa plötu og hvort þeim hafi tekist að breyta sándinu á góðan hátt!

Hildur Maral Hamíðsdóttir  on febrúar 4th, 2010

Ég er reyndar ósammála. Finnst platan Tripper stórgóð, bæði einstaka lög og sem heild. Jaðrar við að vera fullkomin :-)

Mikael Lind  on febrúar 4th, 2010

Hef hlustað mest á Tripper og fínnst hún mjög fín á köflum en í heild ofhlaðin. En eftir þessa plötu hef ég reynt að fylgjast með sveitinni og er ennþá að bíða eftir meistaraverki þeirra! Það kemur fyrr eða síðar er ég viss um.

Tjáið ykkur um málið