Nýtt mp3 frá Yeasayer

by Pétur Valsson on janúar 28, 2010

Sveitin Yeasayer sendir frá sér sína aðra plötu eftir tvær vikur og nefnist hún Odd Blood. Nokkuð er síðan platan lak á netheima og þykir hún bráðskemmtileg og eru flestir á því máli að sveitin hafi tekið nokkuð miklum framförum frá hinni líka frábæru All Hour Cymbal frá 2007. Yeasayer sendi hið stórskemmtilega lag „Ambling Alp“ frá sér fyrir jóla og nú hafa drengirnir ákveðið að lagið „O.N.E.“ verði næsta singull. Smáskífan kemur reyndar ekki út fyrr en í lok mars en það má fá sér frítt mp3 af laginu með því að heimsækja heimasíðuna www.yeasayer.net.

Yeasayer – O.N.E.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Sveitin sendi líka fyrir nokkru frá sér nokkuð fínt myndband við „Ambling Alp“, tékkum á því…

Tengdar færslur:

  1. Nýtt frá Yeasayer
  2. Ný lög frá Arcade Fire
  3. Meira nýtt frá Ariel Pink
  4. Nýtt myndband frá Danielson
  5. Nýtt frá The Pains of Being Pure at Heart

One comment

Sammála, þetta er alveg nokkuð ansi myndband. sérstaklega speglaandlitin.

by kristjangud on Fimmtudagur 28. janúar 2010 at 20:11:00. #

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.