Reykjavík! í ljósritunarvél
Fyrir þá sem eru eilítið seinir í því (eins og ég) er hér gamalt og gott myndband frá hljómsveitinni ærslafullu, Reykjavík!. Myndbandið er við lagið Repticon af síðustu plötu þeirra, The Blood, og er einstaklega hrátt, pönkað og sniðugt – rétt eins og Reykjavík! sjálfir. Ekki nóg með að umslag The Blood hafi verið sandpappír, til þess gerður að rispa plötusafn eigandans, heldur er myndbandið við Repticon tekið af andlitum spriklandi Reykjavík!urmeðlima og gesta í ljósritunarvél! Njótið:





Tweets that mention Reykjavík! í ljósritunarvél | Rjóminn -- Topsy.com on febrúar 9th, 2010
[...] This post was mentioned on Twitter by Rjóminn, Reykjavík! a_band. Reykjavík! a_band said: RT @rjominn: Reykjavík! í ljósritunarvél: Hljómsveitin ærslafulla, Reykjavík!, opinberaði í dag nýtt myndband… http://bit.ly/aPSeuS [...]