Jónsi með myndband við Go Do

Jónsi í Sigur Rós var að senda frá sér nýtt myndband við lagið “Go Do” sem finna má á væntalegri skífu hans, Go, sem kemur út í fyrstu viku aprílmánaðar. Í myndbandinu má sjá Jónsa að vesenast með gamla ferðatösku í niðurníddu húsi umkringdur fuglum. Myndbandið gerðu þeir Árni & Kinski sem hafa einmitt átt farsælt samstarf við Sigur Rós undanfarin ár og gert hvorki meira né minna en 6 myndbönd fyrir sveitina.

Svo er líka búið að taka heimasíðu Jónsa í yfirhalningu og má þar finna ýmsar upplýsingar um væntanlega plötu og tónleikaferð.

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 5.0/5 (3 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: +2 (from 2 votes)
Jónsi með myndband við Go Do5.053pixelstats trackingpixel

Tjáið ykkur um málið