Deerhoof og Xiu Xiu þekja Unknown Pleasures

by Pétur Valsson on febrúar 11, 2010

Það er alltaf áhugavert þegar sveitir taka sig til og þekja heila plötu eftir aðra listamenn. Nú nýlega tóku t.d. Flaming Lips upp Dark Side of the Moon og sitt sýnist hverjum með afraksturinn. Nýlega fréttist það að rokksveitin ofurhressa Deerhoof og hin ívið þunglyndislegri Xiu Xiu myndu sameina krafta sína og flytja meistarverk Joy Division, Unknown Pleasures, á tónleikum í apríl. Þessi blanda hljómar að sjálfsögðu einstaklega vel og víst er að útkoman verður í það minnsta áhugaverð. Líklegt er það muni frekar verða Jamie Steward úr Xiu Xiu heldur en Satomi Matsuzaki úr Deerhoof sem muni feta í fótspor Ian Curtis, þó vissulega væri áhugavert að heyra smávaxna japanska konu syngja „She’s Lost Control“. Ekki hefur heyrst hvort sveitirnar ætli að hljóðrita gjörninginn en við vonum að minnsta kosti að einhver muni búttlegga dæmið. Við getum gert okkur í hugarlund hvernig flutningurinn muni hljóma með því hlusta á tóndæmi frá sveitunum tveimur og svo að sjálfsögðu rifjum við upp eina snilld af Unknown Pleasures

Deerhoof – Scream Team

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Xiu Xiu – Dear God, I Hate Myself

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Joy Division – Shadowplay

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. Deerhoof berjast við hið illa!
  2. Girls þekja End of the World
  3. Beck, Wilco og Feist þekja Oar
  4. Vampire Weekend þekja Rancid
  5. The Shins þekja Squeeze

One comment

A „Hair Hit“ is called on Xiu Xiu after new stage antics encroach on Philly band Hair Rocket’s subversive enlightenment movement.

Follicle warfare has begun!

http://hairrocket.com/2010/04/29/indie-band-hair-rocket-calls-for-hair-hit-on-xiu-xiu/

by Chris on Mánudagur 10. maí 2010 at 16:12:46. #

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.