Girls þekja End of the World
by Pétur Valsson on febrúar 21, 2010
Strákarnir í Girls senda í vikunni frá sér smáskífu við lagið „Morning Light“ af hinni prýðilegu plötu Album sem kom út í haust. Lagið er hið fínasta, þótt það minni óneytanlega á My Bloody Valentine fyrir ca. 20 árum, en á b-hlið smáskífunnar má finna glænýja þekju Girls á smelli Skeeter Davis „End of the World“ sem upprunalega kom út árið 1963. Fjölmargir hafa tekið lagið upp á arma sína, m.a. Carpenters, Nancy Sinatra og jafnvel Susan Boyle, en þekja Girls inniheldur væntanlega mun meira reverb en flestar aðrar útgáfur lagsins…
Girls – End of the World
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Skeeter Davis – End of the World
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
… og svona er myndbandið við nýju smáskífuna:
Tengdar færslur:


2 comments
gott lag, en djöfull er þetta leiðinlegt myndband…
by kristjangud on Sunnudagur 21. febrúar 2010 at 20:29:24. #
[...] Girls þekja End of the World [...]
by Belle and Sebastian þekja Primitives | TUMBLR TRANSLATOR on Miðvikudagur 29. febrúar 2012 at 00:02:07. #