Frightened Rabbit
by Egill Harðar on febrúar 23, 2010
Sú plata sem kemur hvað sterkust inn á nýju ári er nýjasta afurð skosku sveitarinnar Frightened Rabbit. Mun hún vera þriðja breiðskífa sveitarinnar og hennar allra besta ef eitthvað er að marka umtalið. Platan, sem ber nafnið The Winter of Mixed Drinks og kemur út þann fyrsta mars næstkomandi, hefur verið í nánast stanslausri spilun hjá mér síðustu tvo daga þökk sé glæsilegu framtaki Frightened Rabbit að setja hana í heild sinni á MySpace síðu sveitarinnar.
Ég lauma líka með fyrsta smáskífulaginu af plötunni en það er hinn stórgóði óður „Nothing Like You“.
Frightened Rabbit – Nothing like you
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína