Meira nýtt frá Beach House
by Pétur Valsson on febrúar 25, 2010
Baltimore sveitin Beach House er nýbúin að senda frá sér hina frábæru Teen Dream sem er enn sem komið er einn sterkasti kandídatinn fyrir plötu þessa árs. Um miðjan apríl er svo væntanleg stuttskífan Zebra EP með hinu frábæra upphafslagi Teen Dream, einu rímíxi og tveimur glænýjum lögum. Beach House heimsótti útvarpsstöðina Sirius nýlega og tók upp nokkur lög sem útvarpað verður í næstu viku. Meðal þeirra var annað nýju laganna, „The Arrangement“, og er upptakan af því strax farin að fljóta um æðar netsins.
Beach House – The Arrangement
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína