Oh No Ono – Eggs
by Egill Harðar on mars 7, 2010
Einkunn: 4,0
Útgáfuár: 2010
Útgáfa: Friendly Fire
Ein athygliverðasta plata sem út kemur á þessu annars frábæra nýja tónlistarári er Eggs, önnur plata dönsku sveitarinnar Oh No Ono. Hér er á ferðinni marglaga síð-sækadelískt verk sem er afar tilkomumikið og magnþrungið og yfirhlaðið smáatriðum en um leið ljúft og einlægt og hægir á þegar við á eða, og þá til að framkalla ákveðin hughrif, þegar leikar standa sem hæst.
Öll einkenni sækadelískrar tónlistar eru til staðar og þau notuð óspart. Hin ýmsu hljóðfæri eru spiluð afturábak og furðuleg hljóð kastast um í hinum mikla hljóðheimi sem sveitin hefur skapað, eins og til að ringla hlustandann og koma honum úr jafnvægi. Íburðamiklar strengjaútsetningar, sem magnast hægt og rólega í styrk og tilburði í hverju lagi, í bland við forvitnilegt úrval blásturhljóðfæra fullkomna svo hina hugvíkkandi heild. Jú, svo má nú ekki gleyma sítarnum, mellotroninu, lata bjöllubassanum og simbalnum. Hvað væri alvöru sækadelika án þessara hljóðfæra?
Allt er þetta svo tekið og hrært saman við glaðlega, nútímalega og taktfasta popptónlist, hlaðna hljóðgervlum og með örlitlum leifum af raftónlist sem kennd er við hið umdeilda tímabil „eitís“. Jafnvel má með góðum vilja greina diskó á stöku stað. Einnig verður að nefna söngleikja þemað sem skítur upp kollinum á plötunni af og til og svo auðvitað augljósar tilvísanir í afkvæmi meistara Phil Spector, Wall of Sound, en því bregður fyrir í pródúseringunni nokkuð oft.
Útkoman er einstaklega frumleg, þó ekki einstök, og á köflum fullkomlega fjarstæðukennd samsuða ólíkra tónlistarstíla. Einskonar hlaðborð strauma og stefna sem á einhvern ótrúlegan hátt nær að mynda furðu heilsteypt verk. Skiljanlega löðrar allt í tónlistarlegum hliðstæðum og tilvitnunum og tilvísanir má finna í nánast öðrum hverjum tón. Slíkt þætti mörgum ekki gott kaffi en í þessu tilfelli hefur tekist svo vel upp að fáir ættu að vera óánægðir með uppáhellinginn.
Ef einhverskonar bræðingur af Moody Blues, Sgt. Pepper með Bítlunum, MGMT, Blonde Redhead, Air og Of Montreal hljómar spennandi í þínum eyrum þá ættir þú sannarlega ekki að láta þessa plötu fram hjá þér fara.
Oh No Ono – Helplessly Young
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


One comment
[...] Oh No Ono – Eggs [...]
by The Lovely Eggs | HEY LAURENT VOANH IS HERE on Þriðjudagur 6. mars 2012 at 12:03:13. #