The Fall með nýja plötu
Pétur Valsson
Rokksveitin ódrepandi The Fall gefur út nýja plötu í næsta mánuði sem heita mun Our Future Your Clutter og er sú fyrsta sem sveitin gefur út hjá Domino útgáfunni. Þetta er þó 28. breiðskífa hljómsveitarinnar og samkvæmt heimasíðu þeirra hafa The Fall gefið út 40 safnplötur og 35 tónleikaplötur svo það má segja að sveitin sé með þeim útgáfuglaðari. Það er að sjálfsögðu sjálfur Mark E. Smith sem stjórnar The Fall með harðri hendi, líkt og undanfarin 33 ár, og skiptir hann oftar um hljóðfæraleikara en nærbuxur. Þó að enn sé langt í útgáfudag Our Future Your Clutter hefur platan lekið á netið og við fyrstu hlustanir er nú óhætt að mæla með gripnum. Platan jafnast kannski ekki við fjölmörg meistaraverk sveitarinnar en The Fall eru í hörkustuði og skila sínu eins og svo ansi oft áður.
The Fall – Y.F.O.C. / Slippy Floor
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:
- Quasi með nýja plötu í febrúar
- Dodos senda frá sér nýja plötu
- Tindersticks með nýja plötu
- Conor Oberst með nýja plötu
- Final Fantasy með nýja plötu


