Blúshátíð í Reykjavík 2010
Rjóminn
Blúshátíð í Reykjavík 2010 verður haldin 27. mars – 1. apríl. Aðalgestir hátíðarinnar í ár verða Super Chikan and the Fighting Cocks, sem koma sjóðheit frá Mississippi; stórstjarnan Billy Branch frá Chicago og blúsdívan Deitra Farr. Þrennir stórtónleikar verða á Hilton Reykjavík Nordica, þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld, og fjórar dívur syngja í Fríkirkjunni á pálmasunnudag, 28. mars.
Sunnudag 28. mars kl. 20 – Fríkirkjan í Reykjavík
Fjórar dívur: Deitra Farr, Kristjana Stefáns, Ragnheiður Gröndal og Brynhildur Björnsdóttir.
Þriðjudag 30. mars kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
Deitra Farr, þessi stórkostlega blússöngkona frá Chicago tryllir gesti Blúshátíðar í Reykjavík í ár. Deitra er ekta blússöngkona og syngur blús eins og hann gerist bestur. Á tónleikunum kemur einnig fram Nordic All Stars Blues Band með nýrri áhöfn skipaðri úrvali norrænna blúsmanna.
Miðvikudag 31. mars kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
Billy Branch, goðsögn úr Chicago blúsnum; fyrrum munnhörpuleikari Willie Dixon og Chicago Blues All Stars kemur í fyrsta skipti fram á Blúshátíð í Reykjavík. Billy Branch er einn af virtustu og vinsælustu blúsmönnum heims í dag, margverðlaunaður og hefur spilað með flestum stórstjörnum blústónlistarinnar frá upphafi. Á tónleikunum kemur einnig fram íslenska stórsöngkonan Ragnheiður Gröndal og syngur blús.
Fimmtudag 1. apríl, skírdag kl. 20 – Hilton Reykjavík Nordica
Super Chikan and the Fighting Cocks, koma beina leið frá Mississippi og eru líkleg til að gera allt vitlaust. Þeir sem hafa upplifað tónleika þeirra eiga ekki orð af hrifningu. Super Chikan, er tilnefndur til fernra blúsverðlauna í ár. Hann er einstakur og litríkur tónlistarmaður og tónleikar hans eru mögnuð upplifun. The Fighting Cocks skipa þrjár frábærar blúskonur, LaLa Craigdelong, Heather Tackett og Jamiesa Turner.
Blúsmiðinn
Handhafi Blúsmiðans hefur aðgang að öllum þrennum tónleikunum á Hilton Reykjavik Nordica. Takmarkað magn Blúsmiða er í boði.
ATH: Miðasala fer einnig fram við inngang alla daga hátíðarinnar.
Tengdar færslur:
- Miðasala er hafin á Blúshátíð í Reykjavík 2011
- Reykjavík Music Mess: Ný tónlistarhátíð
- Miðasala á Reykjavík Music Mess hefst í dag
- Cut Copy tónleikar í Reykjavík 20. Júlí
- Hið árlega sumar-eip Reykjavík!ur


