Fanfarlo í Bræðslunni

by Guðmundur Vestmann on apríl 9, 2010

Hið sænsk/breska indípopp band Fanfarlo hefur staðfest komu sína á Bræðsluna 2010. Bandið gaf út frumburð sinn í fyrra, plötuna Reservoir, sem fékk fína dóma hjá gangrýnendum og endaði m.a. í 6.-8. sæti á Árslista Rjómans. Hljómsveitin komst svo raunar í fréttirnar hér á landi, ekki fyrir tónlist sína heldur sökum þess að stúlkan Sigurrós (sem bandið er nefnt eftir) prýðir plötukoverið.

Bræðslan er nú haldin í fimmta árið í röð á Borgarfirði Eystri. Undanfarin ár hafa listamenn á borð við Belle and Sebastian, Emílíönu Torrini og Damien Rice troðið þar upp. Hátíðin verður haldin í lok júlí í gamalli fiskibræðslunni í þessum fagra firði austur á landi. Þess má geta að forsvaramönnum hátíðarinnar var afhent Eyrarrósin snemma á þessu ári.

Auk Fanfarlo, hafa Dikta, KK & Ellen og 200.000 Naglbítar staðfest komu sína þetta árið.

Fanfarlo – Luna

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Fanfarlo – Fire Escape

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Engar tengdar færslur.

One comment

[...] This post was mentioned on Twitter by Rjóminn. Rjóminn said: Nýtt á Rjómanum : Fanfarlo í Bræðslunni: Hið sænsk/breska indípopp band Fanfarlo hefur staðfest komu sína á Bræðsl… http://bit.ly/cJNG7d [...]

by Tweets that mention Nýtt á Rjómanum : Fanfarlo í Bræðslunni: Hið sænsk/breska indípopp band Fanfarlo hefur staðfest komu sína á Bræðsl... -- Topsy.com on Föstudagur 9. apríl 2010 at 13:41:45. #

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.