Elíza Newman – Eyjafjallajökull

Tónlistarkonan Elíza Newman mun gefa út lagið sitt “Eyjafjallajökull” um allan heim þann 30. april næstkomandi. Henni hefur boðist útgáfusamningur við plötufyrirtækið Your Favorite Music til að gefa lagið út og höfundaréttasamning við fyritækið Quite Great!.

Síðasta vika hefur verið afar viðburðarík hjá Elízu þar sem henni var boðið að koma fram á Al Jazeera sjónvarpstöðinni (19.apríl) til að hjálpa erlendu fólki að bera fram orðið Eyjafjallajökull . Til þess samdi hún lítið lag á Ukulele sem kallast “Eyjafjallajökull” og sló það rækilega í gegn. Þessi frétt varð ein vinsælasta frétt Al Jazeera fyrr og síðar og var endursýnd ótal sinnum, einnig var hún sett á netið og á þeim sex dögum sem liðnir eru nær 200.000 manns búnir að horfa á myndbandið. Umfjöllun um lagið hefur einnig birst í New York Times , Huffington Post, The Daily Telegraph og fjölda netsíða um allan heim.

Í kjölfarið var Elízu boðin útgáfu samningur og skellti hún sér í hljóðver um helgina og tók upp  lagið sem fer nú í útgáfu um allan heim.

Elíza Newman – Eyjafjallajökull

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Hafdís Huld í viðtali á ITN
  2. Dikta – Get it Together
  3. Moses Hightower og Seabear í Havarí
  4. Í annan heim með Rökkurró
  5. Amadou & Mariam

Tjáið ykkur um málið