Meshuggah spilar á Roskilde

by Egill Harðar on maí 12, 2010

Ég tel víst að málmhausar og flösuþeytarar fari að hugsa sér til hreyfings og safna í ferðasjóð nú þegar staðfest hefur verið að sænska þungarokkssveitin Meshuggah muni spila á Roskilde hátíðinni í byrjun júlí. Sveitin hefur hlotið nánast einróma lof gagnrýnenda fyrir þann tæknilega og útpælda stærðfræðimetal sem hún básúnar yfir aðdáendur sína og þykir hún með allra fremstu þungarokksveitum heimsins í dag.

Ég verð að segja fyrir mitt leiti að lengi vel var ég ekkert allt of hrifinn að lænöppinu en með þessari viðbót, auk rokksveitarinnar Biffy Clyro, þá er ekki laust við að það heilli eilítið að skella sér og heilsa upp á frændur vora eftir nokkrar vikur.

Meshuggah – Bleed

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. Roskilde 2011: Bring Me To The Horizon
  2. Mastodon á Roskilde 2011

One comment

[...] This post was mentioned on Twitter by Rjóminn. Rjóminn said: Nýtt á Rjómanum : Meshuggah spilar á Roskilde: Ég til víst að málmhausar og flösuþeytarar fari að hugsa sér til hr… http://bit.ly/cyRTrb [...]

by Tweets that mention Meshuggah spilar á Roskilde | Rjóminn -- Topsy.com on Miðvikudagur 12. maí 2010 at 22:57:05. #

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.