Momentum – Fixation, at Rest
by Egill Harðar on maí 14, 2010
Einkunn: 4,5
Útgáfuár: 2010
Útgáfa: Molestin Records
Ég verð að játa að ég hafði ekki áður heyrt á Momentum minnst og kom því, ef svo mætti að orði komast, af fjöllum þegar fyrstu tónar plötunnar Fixation, at Rest tóku að hljóma. Það var nokkuð ljóst strax við fyrstu hlustun að hér væri eitthvað sérstakt á ferð og því oftar sem ég hlustaði á plötuna rann það upp fyrir að ég gæti mögulega verið að hlusta eitthvað það ferskasta og hugmyndaríkasta sem fram hefur komið í íslensku þungarokki um árabil.
Mikið hefur verið í þessa plötu lagt en um tvö ár eru liðin frá því að meðlimir sveitarinnar hófu undirbúning hennar, lagasmíðar og myndvinnslu. Myndvinnsla, eða myndlist öllu heldur, spilar stórt hlutverk á plötunni því hvert lag er túlkað með myndlistarverki sem Hörður Ólafsson, söngvari og bassaleikari Momentum, hefur unnið. Verk þessi eru svo unnin út frá sérstakri hugmyndafræði sem finna má í söngvum plötunnar.
Þetta, ásamt gesta söngvurum og fiðlu-, selló- og píanóleik (alls komu um 13 manns að gerð plötunnar) gerir plötuna að afar sérstökum grip. En allt þetta umstang hefði ekkert að segja ef ekki væru á plötunni að finna hugvitsamlegar, upphefjandi og afar stílfærðar tónsmíðar, flott riff, fanta góðan trommuleik og stúdíovinnu á heimsmælikvarða þar sem Axel „Flex“ Árnason fer fimum höndum um stjórnborðin.
Platan hlykkjast og veltist um frá drungalegum og dynjandi þungmálmi yfir í ljóðræna og draumkennda hljóðheima og skapar þannig bæði eftivæntungu fyrir hinu óþekkta sem og að byggja upp oft óbærilega og yfirþyrmandi spennu. Hljóðheimurinn, sem oft er magnaður upp með ýmsum hljóðbútum og umhverfishljóðum, gefur ímyndaraflinu lausan tauminn og maður sér fyrir sér allskonar sýnir sem oftar en ekki eru bæði myrkar og ógnvekjandi. Að sjá svo myndlistarverkin og lesa textana með fullkomnar svo upplifunina og maður situr eftir með tilfinninguna, sem svo sjaldan gerist orðið nú í dag (og þá sérstaklega hvað þungarokk varðar), að það sem maður var að enda við að hlusta á hafi verið eins nálægt fullkomnun og skaparar þess komust við sköpun þess.
„Psychadelic Progressive Metal“, eins og tónlist Momentum er lýst á ensku, er eflaust ekki tónlistarstefna sem heillar marga en í þessu tilfelli skiptir það ekki máli. Fixation, at Rest brúar rokk sjóndeildarhringinn nánast eins og hann leggur sig og á sannarlega heima í safni hvers einasta heiðarlega rokkara.
Ein af plötum ársins. Punkur!
Tengdar færslur:


2 comments
[...] This post was mentioned on Twitter by Egill Harðar. Egill Harðar said: Plötudómur um nýjustu afurð Momentum kominn á Rjómann : http://bit.ly/boqjLF [...]
by Tweets that mention Momentum – Fixation, at Rest | Rjóminn -- Topsy.com on Föstudagur 14. maí 2010 at 16:24:27. #
[...] sú þriðja í röðinni) sveitarinnar, hefur verðið að fá góðar undirtektir (m.a. hér á Rjómanum) og hefur hún meðal annars verið nefnd sem hugsanleg plata [...]
by Útgáfutónleikar Momentum | Rjóminn on Fimmtudagur 30. september 2010 at 10:59:43. #