Sækadelísk Messa í F-moll

by Egill Harðar on maí 14, 2010

Ein af áhugaverðustu plötum sem ég hef eignast fékk nýlega sína árlegu upprifjunar spilun hjá mér en það er hin stórmerkilega plata Mass In F-Minor með Electric Prunes. Platan, þar sem messa sungin á latínu er útfærð fyrir sækadelískt band, þótti afar framúrstefnuleg þegar hún kom út í upphafi árs 1968 en naut engu að síður ekki almennrar hylli fyrr en lagið „Kyrie Eleison“ var notað í myndinni Easy Rider ári seinna.

Lögin á plötunni eru útsett og samin af tónskáldinu David Axelrod sem frægastur er í seinni tíð fyrir að vera í sérstöku uppáhaldi hjá hljóðsmölurum eins og DJ Shadow og útgáfur sínar hjá Blue Note Records.

Upptökur á Mass In F-Minor gengu ekki áfallalaust fyrir sig og leystist hljómsveitin m.a. upp og hætti tímabundið á meðan á þeim stóð. Þurfti Axelrod því að fá inn session spilara til að klára verkið en margir vilja meina að þetta hafi orðið til þess að gera plötuna enn betri en ef Sveskjurnar hefðu séð um hljóðfæraleikinn einar.

Hverju sem því líður þá er hér óumdeilanlegt meistaraverk að ræða sem hver einasti tónlistaráhugamaður ætti að kynna sér.

Electric Prunes – Sanctus

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. Mr. Fanstasy
  2. Yellow Submarine
  3. Eldgamalt grúv fyrir kvöldið
  4. Sólskinspopp með sækadelískum barokk undirtón
  5. Nýtt mixtape frá ritstjóra

One comment

[...] This post was mentioned on Twitter by Rjóminn. Rjóminn said: Nýtt á Rjómanum : Sækadelísk Messa í F-moll: Ein af áhugaverðustu plötum sem ég hef eignast fékk nýlega sína árleg… http://bit.ly/bO9E4J [...]

by Tweets that mention Sækadelísk Messa í F-moll | Rjóminn -- Topsy.com on Föstudagur 14. maí 2010 at 11:19:45. #

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.