Yo La Tengo rímixaðir
by Pétur Valsson on maí 19, 2010
Nú í júní kemur út glæný rímix ep plata með hinni frábæru sveit Yo La Tengo. Lagið sem fær yfirhalningu á skífunni er upphafslag Popular Songs, „Here To Fall“, sem kom út síðastliðið haust. Það eru engir aukvisar sem leggja hönd á plóginn en þeir sem munu endurhljóðblanda eru De La Soul, RJD2 og Pete Rock. Matador Records setti rímix hins síðastnefnda á vefinn í gær og eins og heyra má fer hinn fornfrægi hiphop gúru Pete Rock nokk frjálslega með lag Hoboken búanna.
Yo La Tengo – Here To Fall (Pete Rock Remix)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Upprunalega útgáfa lagsins hljómar svona:
Yo La Tengo – Here To Fall
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína