Sumartónlistarveisla á Sódómu á laugardagskvöldið

by Rjóminn on maí 20, 2010

Það verður sannkölluð vorstemming í lofti Sódómu Reykjavík næsta laugardag, þann 22. maí, þegar fjórar af efnilegri hljómsveitum landsins leiða saman hesta sína í sannkallaðri hljóðveislu. Hljómsveitirnar Weapons, Cosmic Call, Útidúr og Yoda Remote munu skemmta gestum staðarins frá klukkan 23 fram á nótt. Búast má við feikna stemmingu á Sódóma Reykjavík næsta laugardag þar sem nýtt og ferskt efni verður á boðstólnum en allar sveitirnar hafa verið duglegar við spilamennsku síðasta árið.

Allar þessar sveitir munu koma fram á tónlistahátíðinni Villta Vestrinu á Akranesi þann 12. júní næstkomandi en hátíðin er haldin  af hljómsveitunum Cosmic Call og Weapons.  Villta Vestrið er einn stærsti tónlistarviðburður sem haldinn hefur verið á Akranesi síðan Skagarokk var haldið í byrjun 10. áratugarins, með Black Sabbath og Jethro Tull í broddi fylkingar.

Þetta eru tónleikar sem enginn má missa af. Húsíð opnar 22:00 og byrja tónleikarnir byrja kl 23:00. Frítt inn!

Weapons – Mister Mister

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Cosmic Call – Owls

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. Frí tónlistarveisla á Faktorý fimmtudagskvöldið 22. júlí.
  2. Píanómetall á Sódómu 29. jan.
  3. Villta Vestrið
  4. Á Sódómu um helgina
  5. Tvennir áhugaverðir tónleikar á Sódómu

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.