Frumburður Mountain Man
by Pétur Valsson on maí 28, 2010
Síðastliðið haust póstaði ég nokkrum lögum með bandarísku stúlknasveitinni Mountain Man sem hafði þá nýlega gefið út frábæra lágstemmda EP-plötu sem þær heimabrugguðu.
Nú er tími kominn á breiðskífu frá stelpunum og heitir gripurinn Made The Harbor. Skífan kemur út um miðjan júní og það er Bella Union sem gefur út, en útgáfan sú er m.a. heimili Beach House, Fleet Foxes, Andrew Bird og Midlake – ekki amalegur félagsskapur það. Platan væntalega er hinn fínast gripur svo við skulum tékka á tveimur tóndæmum:
Mountain Man – Animal Tracks
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Mountain Man – River
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína