Nýtt lag frá Miri

by Kristján Guðjónsson on júní 1, 2010

Í dag kom út nýtt lag með austfirsku rokksveitinni Miri, með því fylgdi smá fréttatilkynning:

Það kveður við nýjan tón. Rétt eins og nýafstaðnar kosningar marka kaflaskil í íslensku samfélagi er komið að kaflaskilum hjá hljómsveitinni Miri.

Eftir að hafa unnið hörðum höndum að fyrstu breiðskífu sveitarinnar er loksins komið að því að taka skrefið fram á við og gefa henni lausan tauminn. Í dag er 1.júní og sumarið er sannarlega komið.
Miri hefur því ákveðið að fagna með því að hleypa sínu eigin Sumri lausu. „Sumarið 2009″ er eitt af níu lögum breiðskífunnar Okkar sem Kimi gefur út. Örvar Smárason stórt hlutverk með fallegum munnhörpuleik sínum sem sannarlega færir tónlistinni aukinn vestrænan brag, út á slétturnar þar sem eftirsjáin að því sem áður var mætir bjartari tímum, tímum sem spila endurnýjaðan vonartón.

Það kveður við nýjan tón.

Miri – Sumarið 2009

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. Miri á heima á Íslandi.
  2. Myndband frá Miri
  3. Okkar með Miri komin út
  4. Miri selur lag til styrktar Mæðrastyrksnefndar á Mæðradaginn
  5. Miri spilar á North by Northeast

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.