Sumarást með Mugison og Reykjavík!
by Egill Harðar on júní 4, 2010
Strákarnir í Reykjavík! og strákarnir í bandinu hjá Mugison skelltu sér út á land, á Flateyri og í Súðavík nánar tiltekið, til að fanga gleðina, stuðið og finna hina einu sönnu sumarást. Úr varð heljarinnar popplag að hætti hússins sem teljast verður afar líklegt til vinsælda á betri útvarpsstöðvum landsins. Tilefnið er væntanleg sumarsafnskífa Kima sem nefnist Hitaveitan.

Lagið var frumflutt nú í morgun á Rás 2 og verður gefið frjálst til niðurhals á vef www.grapevine.is frá og með hádegi í dag.
Reykjavík! og Mugison – Sumarást
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína