Nýtt frá Blonde Redhead
by Pétur Valsson on júní 7, 2010
Það hefur verið nokkuð hljótt um sveitina Blonde Redhead frá því hún gaf út hina frábæru 23 fyrir þremur árum. Tríóið gerði reyndar tónlist nýlega við heimildarmyndina The Dungeon Masters og ýmsar vísbendingar gefa til kynna að Kazu Makino og Pace tvíburarnir hafi verið dugleg í hljóðverinu upp á síðkastið. 4AD útgáfan gaf t.d. út nýtt lag sveitarinnar á safnplötu nýlega og vonandi bendir það til þess að ný breiðskífa sé væntanleg frá hljómsveitinni innan skamms. Auk þess endurhljóðblandaði Blonde Redhead nýlega lagið „Drip“ með Liars af þeirra nýjustu afurð, Sisterworld, en í þessari útgáfu má heyra hana Kazu syngja með sveitinni.
Blonde Redhead – Not Getting There
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Liars – Drip (Blonde Redhead Remix)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína