Ný breiðskífa For a Minor Reflection
by Rjóminn on júní 9, 2010
Hljómsveitin For a Minor Reflection sendir nú frá sér sinn annan geisladisk sem ber nafnið Höldum í átt að óreiðu. Hljómsveitin hefur áður sent frá sér diskinn Reistu þig við, sólin er komin á loft… sem kom út fyrir Iceland Airwaves hátíðina árið 2007.
Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og For a Minor Reflection hafa fengið tækifæri til að spila á fjölda hátíða erlendis, en jafnframt því sem hljómsveitin hitaði upp á síðasta tónleikaferðalagi Sigur Rósar um Evrópu hefur hún skipulagt sínar eigin tónleikaferðir.
Höldum í átt að óreiðu inniheldur 10 frumsamin lög sem samin eru frá 2008 til 2009. Upptökuferlið fór fram í Sundlauginni í Mosfellsbæ sl. haust og var upptökustjórn í höndum Scott Hackwith. Scott þessi hefur unnið með hljómsveitum á borð við the Ramones og rekur sitt eigið hljóðver í LA sem nefnist Slogan Music en þar fór hljóðblöndun á plötunni fram.
Höldum í átt að óreiðu kemur út föstudaginn 11. júní og mun fást í öllum betri plötubúðum en dreifingu annast Record Records.
For a Minor Reflection stefna að því að diskurinn komi út í Evrópu í haust.
For a Minor Reflection – Dansi Dans
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína