Ný Vaselines plata

by Pétur Valsson on júní 11, 2010

Það er ekki langt síðan skoska dúóið The Vaselines gekk aftur eftir nærri tveggja áratuga dvala. Hljómsveitin var ætíð frekar langt út á jaðrinum og varð ekki almennilega þekkt fyrr en Kurt Cobain tók að mæra sveitina við hvert tækifæri. Nirvana spilaði einnig gjarnan Vaselines lög á tónleikum og má m.a. heyra þekjur af lögum þeirra á b-hliða plötu Nirvana, Incesticide, og á MTV Unplugged In New York.

Nú í september er ný plata væntanleg frá The Vaselines, Sex With An X, og þeim Frances McKee og Eugene Kelly til aðstoðar eru Steve Jackson og Bob Kildea úr Belle & Sebastian og Michael McGaughrin úr 1990s. Fyrsta lagið sem heyrist af nýju plötunni heitir „I Hate The 80’s“ þar sem sannleikurinn um 9. áratuginn er sagður, við skulum tékka á því og í leiðinni rifja upp tvö gömul Vaselines lög…

The Vaselines – I Hate The 80’s

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The Vaselines – Jesus Wants Me For A Sunbeam (af Dying for It EP, 1987)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

The Vaselines – Son Of A Gun (af Son of a Gun EP, 1987)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. Ný plata frá Cut Copy
  2. Nýtt lag og plata frá Nolo
  3. Ný plata frá TV on the Radio
  4. Ný lög frá Arcade Fire
  5. A Turn in the Dream-Songs: Ný plata frá Jeffrey Lewis

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.